- Auglýsing -
Einn greindist með COVID-19 við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær. Þetta kemur fram í tölum um rannsóknir gærdagsins á covid.is 843 sýni voru tekin við landamæraskimun í gær.
Þá voru 34 sýni tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og tíu sýni hjá Íslenskri erfðagreiningu, ekkert smit greindist í þeim sýnum.
Átta eru nú í einangrun hér á landi vegna COVID-19 og 279 eru í sóttkví.
Alls hafa tíu smit greinst við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli síðan verkefnið hófst þann 15. júní.