Glúmur Baldvinsson stakk niður penna eftir að söngvakeppnin á RÚV var búin.
Sagði/Skrifaði á sinn skemmtilega hátt:
„Gufa á Gufunesi. Söngvakeppnin enn og aftur og alltaf sama sagan, sama gargið og gólið, og sami hávaðinn. Að vand a ekkert nýstárlegt eður frumlegt. Bara gamla góða falska vonin og brosið. Einsog að hlusta og horfa síendurtekið á rispaða plötu með stolnum íslenskuðum ítölskum slögurum frá áttunda áratugnum. Og allir svo viðbjóðslega happy.“
Segir/skrifar einnig:
„Allir vita að allir metnaðarfyllstu og flottustu tónlistarmenn þjóðarinnar létu aldrei sjá sig þarna ódrukknir. Það sem er mest spennandi við þessa hörmung eru kosningarnar. Því þá fáum við sigurverara sem halda út með þjóðina á herðunum í von um að sigra eitthvað sem við vinnum aldrei. Til hamingju Ísland!“