- Auglýsing -
Eitt COVID-19 smit greindist í sýnum sem tekin voru við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær. 632 sýni voru tekin við landamraskimun í gær og önnur 68 sýni voru tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Fimm eru nú í einangrun hér á landi vegna COVID-19 og 533 eru í sóttkví.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan 14:00 í dag þar sem fjallað verður um stöðu mála varðandi opnun landamæra.