- Auglýsing -
Eitt COVID-19 smit greindist í sýnum sem tekin voru við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær. Þetta kemur fram á covid.is
961 sýni voru tekin við landamraskimun í gær og önnur 64 sýni voru tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Átta eru nú í einangrun hér á landi vegna COVID-19 og 344 eru í sóttkví.
Alls hafa nú tíu smit greinst við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli síðan verkefnið hófst þann 15. júní.