- Auglýsing -
Í gær stakk ökumaður bifreiðar af eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda á Suðurnesjum. Lögreglan auglýsir eftir vitnum að atvikiinu.
„Í gær á milli klukkan 17:20 og 17:30 var ekið á gangandi vegfaranda í Garði á móts við Kjörbúðina við Sunnubraut. Ökumaður fór af vettvangi án þess að kanna með ástand þess sem ekið var á. Sá sem ekið var á slasaðist sem betur fer ekki alvarlega en við þurfum nauðsynlega að ná tali af ökumanni og skorum á hann að gefa sig fram. Einnig óskum við eftir að því að vitni gefa sig fram ef einhver sá atvikið,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.