Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára, en ekkert hefur spurst til hans síðan í september. Hann er um 185 sm á hæð, grannvaxinn, rauðhærður og var með sítt hár, rautt skegg og gleraugu.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er vitað að Arnar fór til Þýskalands í ágúst síðastliðinn þar sem hann fór til Berlínar. „Ef einhver getur gefið upplýsingar um ferðir Arnars síðan í september er viðkomandi beðinn um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi í síma 444-0650 eða netfangið: [email protected],“ segir í tilkyningunni.
Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára, en ekkert hefur spurst til hans síðan í september sl….
Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Wednesday, December 2, 2020