Skimanir þeirra starfsmanna Landspítalans sem mögulega voru útsettir fyrir Covid-smiti reyndust allar neikvæðar. Búið er að skima meirihluta þeirra sem tengjast smituðum starfsmanni göngudeildar spítalans.
Starfsmaður Landspítalans greindist með Covid-19 í fyrradag og er viðkomandi smitaður af breska afbrigði veirunnar. Hópur starfsmanna og sjúklinga var sendur í sýnatöku og deildinni lokað. Nú eru um fimmtíu starfsmenn og sjúklingar eru í sóttkví vegna smitsins.
Deildin, A3, er dagdeild, þar er veitt göngudeildarþjónusta vegna gigtar-, innkirtla-, lungna-, ofnæmis, og smitsjúkdóma í kjölfar sjúkrahúslegu. Á deildinni er einnig rannsóknarsetur svefnlækninga og starfaði viðkomandi á þeirri deild.
Vísir greinir frá því að skimanir meirihluta starsmanna spítalans hafa reynst neikvæðar en umfangsmikil smitrakningin hefur staðið yfir. Rakningin hefur meðal annars náð til tónleikagesta í Hörpu á föstudagskvöld þangað sem hinn smitaði starfsmaður sótti tónlieika.