- Auglýsing -
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálfellefu um mikinn eld í tjörutönkum við malbikunarstöðina Höfða. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn.
Samkvæmt mbl.is er verið að kalla út aukalið vegna brunans. Eldurinn kviknaði í klæðningu í tjörutanki og er unnið í þremur körfubílum við að ráða niðurlögum eldsins og hindra að hann komist í sjálfan tankinn.