Miss Universe Iceland fór fram í Gamlabíói í kvöld þar sem krýnd var ný fegurðardrottning að nafni Elísa Gróa Steinþórsdóttir.
Elísa sem er förðunarfræðingur og flugfreyja hefur tekið þátt í fjölmörgum fegðurðarsamkeppnum, bæði hér á landi og erlendis.
Tuttugu stúlkur tóku þátt í keppninni í ár og hafa þær verið áberandi á Instagram síðu Miss Universe Iceland síðustu vikur.
Manúela Ósk Harðardóttir er framkvæmdarstjóri keppninnar á Íslandi.
Dómnefndinina skipuðu Laylah Loiczly, Elixabeth Safrit Bull, Kendra Champagne, Kristen Regalado og Caroline Frolic Absalom.
Elísa mun stíga á svið í Ísrael í desember og keppa þar fyrir Íslands hönd. Elísa var einnig krýnd vinsælasta stúlkan og Miss max factor.
Sigurvegari Miss Supranational 2021 var einnig krýnd og hreppti Miss Crystal beach eða Íris Freyja þann titil í ár. Íris mun ferðast til Póllands næsta sumar þar sem hún keppir í Miss supranational fyrir Íslands hönd. Þá hlaut hún einnig titilinn Miss label m og Miss norom Iceland
Þá var Miss Kirkjufell krýnd Miss Reebok fitness, Miss Eldey hlaut titilinn Miss fitness sport, auk þess að lenda í þriðja sæti.
Directors award hlaut Miss eastern Iceland.
Fimmta sætið hlaut Miss Beiðholt, það fjórða Miss Kirkjufell.
Við óskum stúlkunum innilega til hamingju með titlana.