„Þeir komust til síns heima á mánudag, uppfullir af hangikjöti og graflaxi,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi.
Elliði býr á Hjalla í Ölfusi, utan alfaraleiðar. Hann bjargaði tveimur ungum drengjum, 16 og 17 ára, úr háska um helgina. Í samtali við Bítið á Bylgunni í morgun sagði hann að þeir hefðu dúkkað upp hjá fjölskyldunni á laugardag eftir að bíllinn þeirra lenti utan vegar í óveðrinu. Ekki reyndist vera nokkur leið að ná bifreiðinni upp á veginn. Drengirnir enduðu svo með að gista hjá fjölskyldunni og komust ekki til síns heima fyrr en á mánudag, eftir tveggja sólarhringa dvöl í faðmi fjölskyldu bæjarstjórans.
„Það vildi svo heppilega til að konan mín fékk matarkörfu í jólagjöf á föstudag,“ sagði Elliði í Bítinu. Því lifði fjölskyldan á hangikjöti, svínahamborgarhrygg og graflaxi um helgina. Það kom sér vel þegar ungu mennirnir bættust við. Elliði sagði í samtali við Mannlíf að hann vissi ekki önnur deili á ungu drengjunum en að þeir heita Kristófer og Þröstur.
Elliði er fjölhæfur bæjarstjóri en hann var á fullu að moka snjó á gröfu í morgun þegar Bítið á Bylgjunni ræddi við hann. Hann var enn að moka þegar Mannlíf hafði samband við hann klukkustund síðar.