- Auglýsing -
Það verða engar uppsagnir hjá Play flugfélaginu um mánaðamótin. Það staðfestir Arnar Már Magnússon, forstjóri félagsins í samtali við Mannlíf.
Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá stefnir flugfélagið á að hefja formlega starfsemi næsta vetur og munu tæplega 40 starfsmenn fyrirtækisins halda áfram að vinna hörðum höndum að því. Flugrekstarleyfi Play liggur klárt hjá Samgöngustofu.
„Engar uppsagnir verða fyrir mánaðamótin hjá PLAY. Hér er bara hefðbundinn og daglegur rekstur í gangi,“ segir Arnar Már.