- Auglýsing -
Ekkert nýtt COVID-19 smit greindist hér á landi á síðasta sólarhring. Staðfest smit eru áfram 1.799 en virk smit voru í gær 66 og fer þeim fækkandi á milli daga.
71 sýni voru tekin í gær á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær. Íslensk erfðagreining tók ekkert sýni í gær.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14.00. Alma D. Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála.