- Auglýsing -
Í gær greindist enginn innanlands með kórónuveirusmit en aftur á móti greindust þrír við landamæraskimun. Tveir einstaklingar eru enn á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af annar þeirra á gjörgæslu.
Samkvæmt uppfærðum tölum hefur einstaklingum í sóttkví fækkað um nærri 100 manns og eru nú 830 í sóttkví. Flestir þeirra eru í höfuðborginni. Til samanburðar við gærdaginn þá greindust tvö innanlandssmit í fyrradag og þrjú daginn þar áður. Aðeins eitt smit greindist á landamærunum báða dagana.