- Auglýsing -
Ekkert COVID-19 smit greindist í þeim sýnum sem rannsökuð voru hérlendis síðasta sólarhring. Fjöldi smita sem greinst hafa hér á landi eru áfram 1.802, virk smit eru 12.
183 sýni voru rannsökuð hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og 368 sýni voru skoðuð hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Næsti upplýsingafundur almannavarna- og landlæknis fer fram á morgun, föstudaginn 15. maí, klukkan 14:00.