Landspítalinn hefur tekið fyrir allar heimsóknir gesta á spítalann vegna útbreiðslu COVID-19. Rúv greinir frá þessu. Þar segir að frá klukkan 17.00 í dag hafi spítalinn verið lokaður gestum og verði það áfram allan sólarhringinn.
Rúv hefur eftir Önnu Sigrúnar Baldursdóttur, aðstoðarmanns forstjóra Landspítalans, að ákvörðunin hafi verið tekin eftir fund með farsóttarnefnd Landspítalans í hádeginu.
Lokunin nær til allra starfsstöðva Landspítalans, þar með talið Landspítalans í Fossvogi, á Hringbraut, Vífilsstaða, Grensáss, Landakots og Klepps.
Tekið er fram að einstaka heimsóknir verða leyfðar í sérstökum tilvikum, t.d. ef fólk er að kveðja ástvin í hinsta sinn.