Samtökin No Borders Iceland efndu til mótmælagöngu gegn rasisma og útlendingahatri stjórnmálaflokkanna; gengið var frá Lækjartorgi að lögreglustöðinni við hlemm, þaðan að utanríkisráðuneytinu og endað fyrir utan Valhöll.
Segir í fréttatilkynningu að nú hafi fráfarandi ríkisstjórn hafið sína nýjustu herferð gegn fólki á flótta: Með henni er fólk á flótta svipt dvalarleyfi sínu, fólk sem dvalið hefur hér á landi í fjölmörg ár; og eru fjölmörg börn þar á meðal.
Þetta er fólk sem hefur ekki vernd í öðru landi og má búast við því að vera sent til landa á borð við Sýrland, Írak, Sómalíu og Afganistan. Þetta er gert í krafti nýrra útlendingalaga sem allir þingflokkar að einum undanskildum lögðu blessun sína yfir.
Þegar ríkisstjórnin tekur með opnum örmum á móti fólki af hvíta kynþættinum en losar sig óðfluga við alla aðra hópa, er slíkt ekki hægt að kalla annað en hvíta yfirburðahyggju.
Miðflokkurinn hefur ásamt fleiri stjórnmálaflokkum talað fyrir því að réttur fólks til að sækja um vernd verði afnuminn en slíkt væri brot á fjölmörgum sáttmálum sem Ísland hefur aðild að, þar á meðal Genfarsáttmálanum.
Flóttafólk frá áðurnefndum löndum sem hefur fengið samþykkta vernd á Íslandi fær allt í einu ekki að dvelja hér áfram og fólk í leit að vernd kemur til með að verða brottvísað. Er markmiðið að sjá til þess að engin manneskja upplifi öryggi hér á landi?
Áformað er að koma á fót fangabúðum fyrir fólk á flótta sem kemur til landsins þar sem lögreglu verður heimilað að beita vopnum og færa börn í varðhald. Áformin eru knúin áfram af þeirri hugmynd þrælahaldsins að hvít yfirstétt geti hneppt brúnt eða svart fólk í fjötra að eigin geðþótta.
Hvenær er nóg komið? Nóg ofbeldi? Nægur rasismi?
Skilaboðin eru skýr.
Flóttafólk er ekki velkomið og íslensk stjórnvöld halda áfram að sýna það í verki.
Kröfur okkar eru eftirfarandi:
1. Ekki fleiri brottvísanir. Byrja á að stöðva brottvísanir á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
2. Efnismeðferð og réttláta málsmeðferð fyrir alla.
3. Atvinnuleyfi á meðan á umsókn stendur.
4. Jafn aðgangur að húsnæði og heilbrigðiskerfi.
5. Að endir sé bundinn á einangrunina sem flóttafólk á Ásbrú og annarsstaðar fyrir utan höfuðborgarsvæðið býr við.
6. Leggja niður Útlendingastofnun og fela verkefni stofnunarinnar öðrum embættum, svo sem þjóðskrá og sýslumönnum.
7. Fallið verði frá áformum um fangabúðir fyrir fullorðið fólk og börn á flótta.
8. Aldursgreiningum í formi tanngreininga á börnum verði hætt.
9. Sviptingu á dvalarleyfi flóttafólks verði hætt.
Hér má sjá fleiri myndir frá mótmælunum: