Gestir á veitingastaðnum Red Horse í New Jersay í Bandaríkjunum urðu vitni að árás á gest. Í myndbandi sem vefsíðan TMZ hefur birt sést rifrildi eiga sér stað á veitingastaðnum en forsaga málsins er sú að gestur á einu borði hellti óvart víni yfir gest á öðru borði. Í myndbandinu sést maður í hvítri skyrtu drullu yfir fólkið á hinu borðinu fyrir að hafa hellt niður víninu. Fólkið reynir að útskýra fyrir manninum að um slys hafi verið að ræða en hann lætur sér ekki segjast og heldur áfram að setja út á hegðun fólksins. Eftir að hafa hlustað í nokkra stund dregur maður að nafni David Gulley upp steikarhníf og reynir að stinga manninn í hvítu skyrtunni en honum er snögglega hent í jörðina. Eðlilega vakti þessi árás sterk viðbrögð gesta og má heyra nokkra þeirra öskra í myndbandinu. Hann var síðan afvopnaður og handtekinn af lögreglu. Maðurinn í hvítu skyrtunni hlaut skurð á fingri en neitaði allra læknisaðstoð. Hinn 75 ára gamli David Gulley hefur hins vegar verið ákærður fyrir líkamsárás og vopnaburð.