Lögreglan í Kansas-borg í Missouri í Bandaríkjunum hefur ákært hinn 84 ára Andrew Lester fyrir að skjóta Ralph Yarl, 16 ára, þegar hann fór húsavillt. Ralph hafði ætlað sér að sækja yngri bræður sína en fór húsavillt. Hann barði að dyrum hjá Andrew Lester sem brást við með því að skjóta Ralph tvisvar sinnum, meðal annars í höfuðið. Drengurinn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi en málið hefur vakið mikla reiði íbúa í borginni.
Zachary Thompson, saksóknari í Kansas-borg, sagði á blaðamannafundi í gær að kynþáttur mannanna hefði þýðingu í málinu. Þrátt fyrir það kæmi ekkert slíkt fram í ákærunni sjálfri. Drengurinn segir að Andrew hafi komið til dyra og skotið sig í ennið og svo í hægri framhandlegg. Þegar drengurinn hafi forðað sér kallaði maðurinn á eftir honum „Ekki koma hingað“.
Maðurinn ber það fyrir sig að þegar hann hafi séð svartan karlmann toga í skjólhurð heimilisins hafi hann gert ráð fyrir að hann væri að reyna að brjótast inn. Drengurinn er á batavegi en að sögn ættingja á hann enn eftir að komast yfir áfallið. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir alvarlega líkamsárás og glæp með skotvopni en getur hann átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.