Fyrir 84 árum síðan braust út fjöldaofbeldi gegn Gyðingum í Þýskalandi og Austurríki sem markaði mikla aukningu á ofsóknum Nasista. Þessi atburður kallast Kristalsnóttin. Nýlega uppgötvuðust áður óséðar ljósmyndir frá þessari nóttu. BBC sagði frá málinu í kvöld.
Á Kristalsnótt réðust Nasistar á þúsundir fyrirtækja Gyðinga, heimili þeirra og samkunduhús og um 100 Gyðingar voru drepnir. Í kjölfarið var um 30.000 karlmenn af Gyðingaættum sendir til útrýmingabúða Nasista.
Nú hafa nýjar ljósmyndir komið fyrir sjónir en þær voru teknar á Kristalsnóttu 1938. Ljósmyndirnar voru teknar af tveimur ljósmyndurum Nasista í þýsku borginni Nurembert og í nálægum bæ sem heitir Fürth.
Að sögn Jonathan Matthews, yfirmanni ljósmyndasafns Yad Vashem, sem er Ísraelsk minningarmiðstöð, voru þessir ljósmyndarar órjúfanlegur hluti af viðburðinum.
Það var minningarmiðstöðin sem birti myndirnar en það var fjölskylda bandarísks hermans af Gyðingaættum, sem barðist í seinni heimstyrjöldinni, er gaf albúmið. Samkvæmt minningamiðstöðinni talaði hermaðurinn aldrei um reynslu sína í stríðinu.
Er barnabarn hans, Elisheva Avital opnaði albúmið fannst henni sem „holur hafi verið brenndar í gegnum hendur hennar“.
Árásirnar 9 og 10 Nóvember árið 1938 eru oftar en ekki taldar vera upphafið af helför Nasista þar sem sex milljón Gyðinga voru myrtir.
Segir Matthews að myndirnir sýni að ofbeldið hafi verið skipulagt af Ríkinu en ekki „sjálfsprottinn atburðinn reiðs almennings“ eins og haldið var fram í Þýskalandi fortíðarinnar.
Hér fyrir neðan má sjá myndirnar sem aldrei áður hafa birst almenningi: