Aftaka á fanganum Kenneth Eugene Smith fer fram í vikunni í annað sinn en tókst fanganum að lifa af aftöku árið 2022. Starfsmönnum fangelsisins náðu ekki að framkvæma aftökuna um árið vegna þess að þeim tókst ekki að tengja hann við aftökubúnaðinn.
Í þetta skipti ætlar fangelsið að beita köfnunargasi en sú aðferð hefur ekki verið notuð áður. Aðferðin hefur verið gagnrýnd og sögð pynting en Kenneth hefur verið á dauðadeild í rúm þrjátíu ár fyrir morð. Var það maður að nafni Charles Sennett sem fékk Kenneth til þess að myrða eiginkonu sína en stuttu síðar framdi Charles sjálfsvíg.