Kona var handtekin á föstudagsmorgun í Los Angeles eftir háhraða bílaeltingaleik. Ekki liggur fyrir af hverju lögreglumenn höfðu upphaflega afskipti af konunni en fljótt var ljóst að hún ætlaði sér ekki að stoppa. Bílaeltingaleikurinn stóð lengi yfir og áttu lögreglumenn erfitt með að stoppa bílstjórann í ofsaakstri sínum en hún tók með annars U-beygju og keyrði á móti umferð til lengri tíma. Endaði hún á að keyra á annan bíl sem varð til þess að bíll hennar stoppaði og voru lögreglumenn fljótir að hoppa til að handtaka konuna, sem reyndist vera alblóðug eftir áreksturinn. Ekki hefur verið gefið út fyrir hvað hún verður ákærð fyrir að en líklegt þykir að hún muni þurfa að dúsa í fangelsi í einhvern tíma.