Í gær var akkurat ár frá því að ísraelskir hermenn drápu hina fimm ára gömlu Hind Rajab, þar sem hún leitaði skjóls innan um myrta ættingja sínum í bifreið frænda síns. Margir hafa minnst hennar á samfélagsmiðlunum af tilefninu.
„Ég er svo hrædd, gerðu það komdu. Gerðu það, hringdu í einhvern til að koma og sækja mig.“
Í gær var ár liðið frá því að beiðni hinnar fimm ára gömlu Hind Rajab um hjálp nokkrum klukkustundum áður en hún var myrt af ísraelska hernum sjokkeraði heiminn.
Sjá einnig: Lík Hindar litlu fundið í bifreið frænda hennar: „Komdu og sæktu mig“
Palestínska barnið var að flýja árás Ísraela á Tel al-Hawa, suður af Gaza-borg, ásamt fjölskyldu sinni þegar bifreið þeirra varð fyrir skotárás ísraelskra hermanna sem komu á vettvang í skriðdreka.
Þann 10. febrúar 2024 fannst Hind Rajab látin eftir að hún hafði verið föst í bifreið í tæpar tvær vikur með látinni fjölskyldu sinni á meðan hún var umkringd ísraelskum hersveitum sem skutu í átt hennar.
Tveir sjúkraflutningamenn frá Palestínska Rauða hálfmánanum (PRCS), Yousef Zeino og Ahmed al-Madhoun, sem voru að lokum sendir til að bjarga Rajab eftir að hún hringdi og bað um hjálp innan úr bílnum, fundust einnig myrtir.
Síðar gaf PRCS út hljóðupptöku af síðasta símtalinu við Hind þann 29. janúar, þar sem síðasta hróp hennar um hjálp heyrist innan um skothríð.
„Gerðu það, náðu í mig,“ má heyra Rajab segja margoft.
Ári eftir morðið á henni birtu notendur samfélagsmiðla um allan heim myndir af Hind til að heiðra minningu hennar og krefjast réttlætis og ábyrgðar á dauða hennar og annarra Palestínumanna.
„Hind Rajab. Eitt ár síðan hún og fjölskylda hennar voru myrt á hörmulegan hátt af her sem kallar sig þann siðferðilegasta,“ skrifaði einn notandi á X, áður Twitter.
„Minning Hind Rajab mun lifa að eilífu – rétt eins og andi Palestínu mun aldrei slökkna,“ birti Jewish Voice for Peace, bandarísk samtök gegn Zíonisma ásamt ljósmynd af Hind með textanum: „Arfleifð Hinds mun lifa að eilífu.“
„Hind, og öll börn á hennar aldri, ættu að geta eytt tíma sínum í að hlæja og leika með vinum, umkringd ást – ekki verða vitni að ólýsanlegum harmleik, aðeins til að verða fórnarlömb þess.“
Nokkrar færslur hvöttu lesendur til að „gleyma aldrei“ Hind og „segja sögu hennar“. Þá minntust þó nokkrir notendur einnig á umfjöllun vestrænna fjölmiðla um morðið á Rajab og lögðu áherslu á það sem þeir sögðu vera hlutdrægt orðalag sem notað var til að hylja aðstæðurnar í kringum dauða hennar.
„BBC nennti ekki einu sinni að uppfæra þessa skammarlegu fyrirsögn,“ skrifaði rithöfundurinn og sérfræðingurinn í sögu Miðausturlanda, Assal Rad á X-inu og vísaði í fréttafyrirsögn BBC sem sagði að Hind hafi „fundist látin á Gaza“.
Enn Aðrir notendur lögðu áherslu á fjölmiðlafréttir á sínum tíma sem „fullorðnuðu“ Rajab, vísuðu til barnsins sem „konu“ og „ungrar dömu“, tungumál sem þeir sögðu vera notað „til að vernda ímynd Ísraels“.
Vaka í minningu hennar fór svo fram í New York-borg í gærkvöldi.
Tákn fyrir andspyrnu Palestínumanna
Rannsókn á vegum Forensic Architecture, Al Jazeera’s Fault Lines og félagasamtökunum Earshot leiddi síðar í ljós að bíllinn sem Rajab lést í hafði orðið fyrir 335 byssukúlum, þar sem flestar þeirra lentu á hægri hlið ökutækisins.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að ísraelski skriðdrekann sem skaut á farartækið sem Rajab var föst inni í hlýtur að hafa verið staðsettur í innan við 13 til 23 metra fjarlægð þegar hann drap Layan, 15 ára frænku Rajab.
„Það er ekki trúlegt að skotmaðurinn hafi ekki séð að bíllinn var fullur af almennum borgurum, þar á meðal börnum,“ sagði í rannsókninni að lokum.
Dauði hennar varð táknmynd fyrir mótmælendur sem styðja Palestínu um allan heim.
Við Columbia háskólann í New York-borg tóku mótmælendur úr röðum nemenda sig til og hertóku byggingu á háskólasvæðinu og nefndu hana „Hind’s Hall“ til heiðurs Rajab.
Lagið Hind’s Hall eftir bandaríska rapparann Macklemore, sem síðan hefur orðið baráttulagi fyrir Palestínu, er tilvísun í bygginguna. Síðar kom einnig út lagið Hind´s Hall 2 með sama rappara.
Veggmynd í Dublin, höfuðborg Írlands, var máluð til minningar um andlát hennar.
Líbanski stjórnmálaaktívistinn og rithöfundurinn Dyab Abou Jahjah stofnaði Hind Rajab Foundation, hagsmuna- og ábyrgðarsamtök „til að heiðra minningu hennar með því að berjast fyrir réttlæti og ábyrgð fórnarlamba eins og hana“.
„Þegar Hind Rajab var myrt fyrir nákvæmlega ári síðan í dag, olli það mér djúpum harmi. Sem faðir stúlku á hennar aldri gat ég varla þolað hryllinginn sem hún mátti þola, eða ólýsanlega sársauka sem foreldrar hennar hljóta að hafa fundið fyrir,“ sagði Jahjah.
„Í dag bergmálar nafn hennar um allan heim, nærvera sem ásækir morðinga hennar. Hind litla er öflugri en þeir höfðu nokkurn tíma ímyndað sér. Hvíl í friði, litli engill, þú munt aldrei gleymast.“
Fréttin er unnin upp úr frétt middleeasteye.net.