- Auglýsing -
Sjö manns létust í skotárás í The Covenant School í Nashville í Bandaríkjunum á mánudaginn, þar af þrjú börn. Skotmaðurinn hafði áður verið nemandi skólans en samkvæmt heimildum lögreglu var hann vopnaður tveimur hríðskotabyssum auk skammbyssu. Átakanlegt myndband úr búkmyndavél lögreglu hefur nú farið sem eldur í sinu um internetið þar sem lögreglan sést ganga um skólann. Að lokum fara þeir upp á aðra hæð skólans þar sem árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögreglu.
Myndbandið er ekki fyrir viðkvæma.