Ísframleiðandinn Ben & Jerry‘s reitti ansi marga til reiði á þjóðhátíðardegi bandaríkjanna með því að birta tíst þess efnis að þjóðin hefði verið byggð á stolnu landi frá innfæddum og leggur til að 4. júlí verði nýttur í að skuldbinda sig við að skila landinu.
33 þúsund athugasemdir hafa verið skrifaðar við tístið þegar þetta er ritað, fjölmargir bersýnilega bálreiðir og athugasemdirnar eftir því.
Ben & Jerry‘s eru þó ekki að leggja til að Bandaríkjamenn pakki saman og flytji eitthvað annað því á síðu þeirra er farið nánar í saumana á málstað þeirra sem var hvatinn að tístinu en þar er fjallað um hvar fjallið Mount Rushmore hafi upprunalega verið heilagt í hugum Sioux indíána áður en nýbúarnir meitluðu í það andlit fyrrum forseta sinna.
Árið 1980 mun Sioux þjóðinni hafa verið boðnar 105 milljónir dala í bætur fyrir fjallið sem var hafnað þar sem fjallið væri ómetanlegt og heilagt. Í dag hafa bæturnar safnað vöxtum og standa í 2 milljörðum dala en eftir sem áður neitar Sioux þjóðin að taka við fénu.
Vilji Ben & Jerry‘s er sá að fyrsta skrefið í að skila Ameríku sé að afhenda Mount Rushmore.