Enska knattspyrnugoðsögnin, Sir Robert Charlton lést í dag 21. október 2023, 86 ára að aldri. Boddy fæddist 11. október 1937. Hans er minnst sem eins besta knattspyrnumanns allra tíma.
Bobby var lengst af leikmaður fyrir enska liðið Manchester United og varð þekktur fyrir frábæran sóknarleik, styrk og snerpu. Þá er hann jafnframt þriðji markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi sem og enska landliðsins.
Á samfélagsmiðlinum X deilir Manchester United mynd af Sir Bobby með orðunum:
„Orð munu aldrei vera nóg“
Sir Bobby Charlton CBE, 1937-2023.
Words will never be enough.
— Manchester United (@ManUtd) October 21, 2023