Bretar búa sig undir aðra hitabylgju eftir nýja spá veðurstofunnar þar í landi. Hiti fer hækkandi á næstu dögum og er búist við allt að 35 stiga hita á sumum stöðum. Hitamet var slegið í Bretlandi um miðjan júlí þegar hiti fór upp í 40 gráður.
Áætlað er að meðalhiti Bretlands haldi áfram að hækka á komandi árum vegna loftlagsáhrifa en þrettán manns létust í hitabylgjunni í síðasta mánuði. Hitamet hefur ekki aðeins verið slegið í Bretlandi þetta árið en hitabylgjur hafa verið víða um Evrópu, einkum í Portúgal, Spáni og Frakklandi.