Búið er að ákveða hvar leikkona Anne Heche verður jörðuð en bálför hennar fór fram þann 18. ágúst.
Eins og heimurinn veit lést Anne Heche í hræðilegu bílslysi er hún keyrði á fullri ferð inn í íbúðarhúsnæði þann 5. ágúst síðastliðinn. Dánarorsök hennar var margþætt en aðalorsökin var reykeitrun og brunasár sem hún hlaut þegar kviknaði í bifreið hennar. Hún var einungis 53 ára gömul.
Sjá einnig: Dánarorsök Anne Heche opinberuð – Nokkrir þættir drógu hana til dauða
Samkvæmt dánarvottorði hennar sem slúðurmiðillinn E! News komst yfir, fór bálför hennar fram þann 18. ágúst. Þá kemur þar einnig fram að aska hennar verði jörðuð í Hollywood Forever kirkjugarðinum í Los Angeles, Kaliforníu. Ekki kom þar fram hvenær hún verður jörðuð þar.