Leikarinn og rapparinn Nick Cannon mætti fyrir stuttu í útvarpsviðtal hjá Charlamagne tha God í The Breakfast Club þar sem hann sagði frá að hann eyði að minnsta kosti 200 þúsundum dölum í Disneylandi á hverjum ári en það eru tæpar 28 milljónir íslenskra króna. Hann segist gera það til að gleðja börnin sín en hann á 12 börn með sex mismunandi konum, þar á meðal með söngkonunni Mariah Carey en þau eiga saman tvíbura.
Cannon vann sjálfur í Disneylandi þegar hann var yngri og sagði í viðtalinu að hann væri til að fá gamla starfsmannaafsláttinn sinn aftur svona í ljósi þessi hversu oft hann kemur og hversu miklum pening hann eyðir á staðnum. Hann hefur þó litlar áhyggjur af peningum en hann er þessa stundina kynnir í þáttunum The Masked Singer, sem er einn vinsælasti þáttur heimsins í dag.