Verslunarstjóri í Brasilíu er heppinn að vera á lífi eftir árás.
Myndband úr öryggismyndavélum brasilískrar verslunar hefur lekið á internetið en myndbandið sýnir hinn 29 ára gamla Danielson Paiva lemja Claudio dos Santos, verslunarstjóra búðarinnar, í hnakkann með skóflu.
Í myndbandinu sést einnig þegar Paiva sækir skófluna inn í búðinni og laumast aftan að Santos til að slá hann. Eiginkona Paiva hafði sakað verslunarstjórann um andlegt áreiti en Santos hefur hafnað öllum ásökunum um slíkt. Árásin er sögð vera hefndaraðgerð fyrir áreitið.
„Ég bjóst aldrei við að neitt eins og þetta myndi gerast. Ég fór af spítalanum á sunnudaginn. Hann vildi virkilega drepa mig og það sem bjargaði mér er síminn, sem brotnaði inn í eyra mitt og það þurfti að sauma mig. En það var síminn sem verndaði mig frá högginu,“ sagði Santos við fjölmiðla í Brasilíu um árásina.
Santos segist hafa hlotið höfuð- og eyraáverka, meðal annars heyrnarmissi. Pavia hefur verið ákærður fyrir morðtilraun en málið er ennþá í rannsókn.