Myndskeið af skíðamanni hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum undanfarna daga en ekki er um venjulegt myndefni að ræða.
Í myndskeiðinu sést hvar franskur skíðamaður, sem ekki vill láta nafn síns getið, skíðar á Meije-fjalli í frönsku Ölpunum en fellur svo ofan í sprungu í fjallinu. Í byrjun lítur út fyrir að hann hafi sloppið vel, það hægist verulega á honum í sekúndu en svo byrjar hann að renna lengra niður hina afar djúpu sprungu. Maðurinn lifði af og gat deilt Go-Pro-myndskeiðinu með heiminum.
Athugið, myndskeiðið er ekki fyrir viðkvæma:
View this post on Instagram