Beðið er eftir niðurstöðu kviðdóms í máli Johnny Depp gegn Amber Heard í Virginiu. Dómsmálið hefur vakið gríðarlega athygli um allan heim og spennan stigmagnast með hverjum deginum.
Búist var við niðurstöðunni í gær en þurfti kviðdómurinn lengri tíma til umhugsunar og fengu því frest til dagsins í dag. Kviðdóminn sitja alls sjö manns, fimm karlmenn og tvær konur en dómarinn í málinu er kona. Samkvæmt erlendum fréttamiðlum er spennan mikil og bíður fjöldinn allur af fjölmiðlafólki fyrir utan dómshúsið. Mannlíf mun fylgjast grannt með framvindu málsins og greina frá niðurstöðunni þegar hún berst.