Skotárás átti sér stað í Tel Aviv í Ísrael í nótt en fimm voru skotnir til bana. BBC greindi frá málinu en mun þetta vera þriðja banvæna árásin á aðeins einni viku en árásin átti sér stað í Bnei Brak. Árásamaðurinn, Palestínumaður, var 26 ára gamall og hafði áður setið í fangelsi. Maðurinn var skotinn til bana af lögreglu en mikið er um heittrúaða gyðinga í hverfinu þar sem skotárásin átti sér stað.
Allir árásamennirnir síðastliðna viku hafa verið Palestínumenn sem eru búsettir í Ísrael en byssumaðurinn í nótt skaut úr riffli á gangandi vegfarendur. Einn lögreglumaður var meðal þeirra sem létu lífið. Naftali Bennett, forsætisráðherra Ísraela, hefur boðað til neyðarfundar vegna málsins.