Mánudagur 18. nóvember, 2024
-3.4 C
Reykjavik

Fjallaljón réðst á níu ára barn í kirkjubúðum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjalljón réðst á níu ára stúlku sem var í feluleik í kirkjubúðum í Washington fylki um síðastliðna helgi. Fjallaljónið særði stúlkuna alvarlega en vinir hennar forðuðu sér og leituðu hjálpar. Stúlkan, að nafni Lily A Kryzhanivskyy og tvö önnur börn, höfðu verið að leik í búðunum sem eru staðsettar nálægt smábænum Fruitland. Lili stökk út úr rjóðri til þess að bregða vinum sínum en beið hennar þar fjallaljón.

Vinir Lili sóttu aðstoð og komu starfsmenn kirkjubúðanna fljótt til hjálpar. Lili slasaðist alvarlega og var flutt með þyrlu á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir aðgerð vegna sára á höfði og efri hluta líkama. Lili var útskrifuð af gjörgæslu á mánudaginn og er ástand hennar sagt stöðugt. Starfsmenn búðanna fundu fjallaljónið skömmu síðar og skutu það. Árásir fjallaljóna á menn eru sjaldgæfar og hafa aðeins tvær banvænar árásir á menn átt sér stað á svæðinu síðustu 100 árin. Tilkynningar um árásir fjallaljóna, þar sem menn hafa slasast, eru tuttugu talsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -