Fjórtán lík fundust í flugfélinni sem hvarf í Himalajafjöllum í gær. Vélin missti samband við flugumferðarstjórn stuttu eftir að hún fór í loftið en var hún frá nepalska flugfélaginu Tara Air. Viðbragðsaðilar hófu leit að vélinni strax í gær og var henni hætt seint um kvöldið.
Skömmu eftir að leit hófst á ný í morgun birti napalski herinn mynd af flugvélapörtum í fjallshlíð en má meðal annars sjá væng vélarinnar með skráninganúmeri. Alls voru 22 um borð í vélinni, þar á meðal fjórir Indverjar og tveir þjóðverjar. Óvíst er hvað varð til þess að vélin hrapaði og átta farþegar er enn leitað.
Morgunblaðið greindi fyrst frá málinu.