Catalin Micu, 54 ára, og Ramona Stoia, 35 ára, fundust látin á húðflúrstofu í Kent á mánudaginn. Þau eiga saman ungan son og hafa unnið saman á stofunni síðan 2016.
Talið er að andlát Ramona hafi borið með saknæmum hætti og þykja líkur á því að Catalin hafi framið sjálfsvíg eftir að hafa myrt barnsmóður sína.
Bæði voru þau vinsælir húðflúrúrar á stofunni Gothink Studio í Kent, Bretlandi.
Catalin er sagður hafa átt erfitt upp á síðkastið en hann hefur misst sjón sína að mestu og hefur því ekki getað starfað við húðflúrun í einhvern tíma. Báðum hefur þeim verið lýst sem góðu fólki og voru þau ekki þekkt fyrir annað en vinsemd.
Málið er nú í rannsókn hjá lögreglunni í Kent.