Suður-Afríkumaðurinn Oscar Pistorius gengur út úr fangelsinu í Ástralíu í dag, frjáls maður. Oscar var dæmdur fyrir að bana kærustu sinni, Reevu Steenkamp,fyrir tæpum ellefu árum á heimili þeirra. Oscar hlaut rúmlega þrettán ára fangelsi en hefur skilorðsnefnd í fangelsinu nú veitt honum reynslulausn.
Oscar, sem nú er 37 ára gamall, þarf að fylgja eftir ströngum reglum og sækja námskeið í reiðistjórnun og sinna samfélagsþjónustu. Auk þess þarf hann að halda sig heima á ákveðnum tíma sólarhrings og bannað er að drekka áfengi. Áður en Oscar hlaut dóminn var hann þekktur fyrir afrek sín í frjálsum íþróttum fatlaðra. Hann missti báða fætur þegar hann var ellefu mánaða gamall en hefur hann alls unnið til sex gullverðlauna á Ólympíumótum fatlaðra.