Þrír hafa verið handteknir eftir að feðgar voru skotnir til bana í tveimur þorpum í Bretlandi fyrr í vikunni. Lögreglan í Cambridgeshire fann lík 32 ára karlmanns í Meridian Close, Bluntisham, um klukkan á miðvikudagskvöld. Skömmu síðar fann lögregla lík 57 ára karlmanns í Sutton. Fórnarlömbin voru Gary Dunmore og sonur hans Josh Dunmore.
Þá handtók lögregla 27 ára karlmann og 33 ára konu í Cambridge á fimmtudaginn og síðar sama dag var 68 ára karlmaður handtekinn á Worcester svæðinu. Öll eru þau grunuð um að eiga aðild að morðunum. Lögregla sendi frá sér tilkynningu þar sem kom fram að rannsókn málsins stæði enn yfir. „Við teljum ekki að það sé nein viðvarandi hætta fyrir almenning í Cambridgeshire,“ sagði meðal annars í tilkynningu lögreglu. Ennfremur óskaði lögregla eftir því að möguleg vitni í málinu gæfu sig fram.