Myndband af vandræðalegu faðmlagi Meghan Markle og skipuleggjanda One World-samkomunnar hefur vakið athygli í dag.
Hvernig heilsar maður hertogaynju sem gengur á móti manni með opinn faðminn? Kate Robertson, skipuleggjandi One World-samkomunnar sem hófst í Royal Albert Hall í gær, er allavega ekki með svarið.
Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, var viðstödd opnunarkvöld One World. Þegar hún gekk upp á svið tók skipuleggjandi samkomunnar, Kate Robertson, á móti henni.
Á meðan Meghan ætlaði að gefa henni faðmlag ætlaði Kate að hneigja sig en útkoman var ansi vandræðaleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem birtist á vef Mail Online.
Meghan og Kate hlógu að uppákomunni og enduðu svo á að faðmast innilega.