Hópur hernaðarsérfræðinga, ríkiserindreka og fræðimanna hvetja David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands til að krefjast „tafarlauss vopnahlés“ á Gaza.
Al Jazeera fréttastofan segir frá yfirlýsingu frá hópi hernaðarsérfræðinga, ríkiserindreka og fræðimanna þar sem þeir hvetja David Cameron utanríkisráðherra Bretlands til að krefjast vopnahlés á Gaza og það tafarlaust.
„Við trúum því staðfastlega að það sé í þágu bæði ísraelskra og palestínskra borgara, og raunar alls svæðisins, ef báðir árásaraðilar dragi úr átökunum,“ var fullyrt í bréfi sem fyrrverandi yfirmaður breska hersins skrifar undir, ásamt 13 öðrum. „Bretland þarf ekki að fylgja forystu Bandaríkjanna, sér í lagi þegar skoðanir almennings í Bandaríkjunum er langt í frá í takt.“
Þó að sérfræðingarnir bendi á „smávegis jákvæða breytingu á tóni“ ríkisstjórnarinnar undanfarna daga, sögðu þeir að stöðug „höfnun Bretlands á tafarlausu vopnahléi væri hernaðarlega illa ígrunduð og siðferðilega óverjandi“.

