Betur fór en áhorfðist þegar hrægammur flaug á og braut rúðu í lítilli flugvél í Brasilíu í vikunni. Myndband sem tekið var upp innan í flugvélinni gengur nú eins og eldur í sinu um internetið og hafa netverjar hrósað flugmönnunum tveimur mikið fyrir að halda ró sinni í mjög erfiðum aðstæðum. Í flugvélinni voru fimm einstaklingar en vélin var á leiðinni til Eirunepe frá Envira í Brasilíu þegar hrægammurinn flaug í gegnum rúðuna. Í viðtali við fjölmiðla þar í landi sagði aðstoðarflugmaðurinn að atvikið hefði getað endað mun verr og að mikil mildi sé að þeim hafi tekist að halda flugvélinni á lofti en hvorki flugmennirnir né farþegarnir þurftu að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi þrátt fyrir að gleri hafi ringt yfir þá.