Ian Wright var heppinn að slasast ekki alvarlega eftir að hafa fallið niður stiga í gærkvöldi.
Knattspyrnugoðsögn Arsenal og enska landsliðsins var kynnir þegar dregið var í riðla á EM kvenna í gær í Swiss Tech-ráðstefnumiðstöðinni í Lausanne í Sviss áður en slysið varð.
Wright þurfti að fá hjálp frá ítalska og þýska goðsögnunum Leonardo Bonucci og Sami Khedira eftir að hafa runnið í stiganum, samkvæmt Daily Mail. Þessi 61 árs gamla knattspyrnugoðsögn gekkst nýlega undir aðgerð á hné og var brugðið yfir atvikinu.
Hann fékk klakapoka og slapp án alvarlegra meiðsla. Hinn ástsæli sparkspekingur gat flogið aftur til Manchester eins og áætlað var á þriðjudagsmorgun og er talinn vera í góðum málum.
Framherjinn fyrrverandi er þekktur sem mikill talsmaður kvennaleiksins og var viðstaddur til að sjá England dregið í D-riðli ásamt Frakklandi, Wales og Hollandi fyrir EM 2025. Ljónynjur Sarina Wiegman eru í fjórða sæti heimslistans og munu stefna að því að verja titil þeirra í Sviss næsta sumar.
Wright gerði lítið úr slysinu með færslu á Instagram þar sem hann deildi myndum frá atburðinum. Hann skrifaði: „Sérstakt kvöld þar sem ég kynnti dráttinn á EM 25 ásamt Annette Fetscherin. England lenti í D-riðli með Frakklandi, Hollandi og Wales.“