- Auglýsing -
Ísraelsher myrti palestínskan blaðamann og sex fjölskyldumeðlimi hans í sprengjuárás á hús hans í gær.
Blaðamaðurinn Jabr Abu Hadros frá Al Quds fréttamiðlinum, lést í sprengingu Ísraelshers á heimili hans í Nuseirat flóttamannabúðunum í mið-Gaza, samkvæmt Al Jazeera. Sex fjölskyldumeðlimir hans létust einnig í sprenginunni.
Samkvæmt yfirvöldum á Gaza hafa nú 106 blaða- og fjölmiðlamenn verið drepnir á Gaza frá 7. október. Til samanburðar létust 63 blaða- og fjölmiðlamenn í seinni heimstyrjöldinni.