James Worthy sendi Magic Johnson fallega afmæliskveðju á Facebook í dag.
James Worthy eða „Big Game James“ eins og hann var gjarnan kallaður er hann lék með L.A. Lakers í NBA á síðustu öld, sendi vini sínum og fyrrum leikfélaga, Ervin „Magic“ Johnson afmæliskveðju á Facebook í dag. Þeir félagar áttu stóran þátt í þeirri gríðarlegu velgengni sem Lakers-liðið naut á níunda áratug síðustu aldar. Saman unnu þeir þrjá meistaratitla með „Showtime“-liði Lakers en Magic hafði unnið tvo titla þegar Worthy mætti á völlinn.
Magic á 63 ára afmæli í dag en Worthy sendi honum fallega kveðju á Facebook. Birti hann nýja ljósmynd af þeim félögum og skrifaði eftirfarandi texta undir: „Til hamingju með daginn Magic Johnson. Ég hitti þig árið 1979 í háskólaheimsókn og hér stöndum við saman árið 2022 á Top 75 athöfninni. Þvílíkt ferðalag!“