Það verða ekki gleðileg jól hjá Gustavo de Souza, verslunareiganda í Cláudio í Brasilíu, en á sunnudaginn rændu tveir þorparar í jólasveinabúningum verslun hans.
Ránið átti sér stað klukkan fjögur um nóttina og náði öryggismyndavél upptöku af öllu saman en til að komast inn brutu ræningjarnir glerhurð með málmstöng og fóru bakvið búðarborðið til að láta greipar sópa.
Á upptökunni sést að mennirnir taka aðallega hluti sem eru á bakvið búðarborðið en aðeins nokkrar vörur úr hillum búðarinnar. Þá rennur annar maðurinn næstum á hausinn á glerbrotunum sem lágu á gólfinu. Mennirnir sjá svo flýja inn í svartan bíl sem þeir höfðu skilið eftir fyrir utan verslunina.
Gustavo de Souza sagði í viðtali við fjölmiðla þar í landi að hann hafi verið rændur áður og það hafi verið mikið áfall. Hann hafi verið nýbúinn að jafna sig eftir það atvik þegar jólasveinarnir rændu hann og rupluðu.