Bandaríska kántrí söngkonan Naomi Judd er látin, 76 ára að aldri. Naomi og dóttir hannar, Wynonna Judd, skipuðu kántrítvíeykið The Judds. Mæðgurnar skrifuðu undir útgáfusamning við plötufyrirtækið RCA Nashville árið 1983, en Nashville er oft kölluð höfuðborg kántrí tónlistarinnar. Mæðgurnar sópuðu til sín verðlaunum og unnu samtals fimm Grammy verðlaun og níu verðlaun frá Country Music Association. Eru þær sagðar með farsælari kántrí söngkonur fyrr og síðar.
Bandaríska söngkonan Naomi Judd er látin, 76 ára að aldri. Hún fæddist í Kentucky og gerði garðinn frægan í kántrítvíeykinu The Judds ásamt dóttur sinni Wynonna Judd. Dætur Naomi, þær Wynonna og Ashley Judd, greindu frá andláti móður sinnar í yfirlýsingu sem birtist í Bandarískum fjölmiðlum. Sögðust þær hafa misst móður sína úr geðsjúkdómi og að hún hafi verið elskuð bæði af fjölskyldu sem og almenningi.