Kína fordæmir „brot á fullveldi Líbanons“ eftir að Ísraelar sögðust hafa hafið sókn á jörðu niðri gegn nágrannaríki sínu.
„Kína er á móti brotum á fullveldi, öryggi og landhelgi Líbanons og er á móti öllum aðgerðum sem auka á átök og leiða til frekari stigmögnunar á hinu svæðisbundna ástandi,“ sagði í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins. Í sama streng tekur utanríkisráðuneyti Tyrklands, sem og Sameinuðu þjóðirnar, Spánn og fleiri ríki.
Talsmaður ísraelska hersins, Daniel Hagari, segir að hersveitir hafi gert árásir í Suður-Líbanon í marga mánuði og afhjúpað Hizbollah-göng og vopnageymslur undir heimilum og afhjúpað innrásaráætlanir hópsins.
Hagari sagði að verið væri að aflétta leyndinni en það hafi byrjað nokkrum klukkustundum eftir að Ísrael tilkynnti um aðgerð á jörðu niðri gegn Hezbollah-hreyfingunni í suðurhluta Líbanon. Hizbollah hefur neitað því að Ísraelar hafi hafið aðgerð á jörðu niðri.
Hagari sagði að niðurstöður og sönnunargögn sem fundust undir heimilum í þorpum í Suður-Líbanon í árásunum verði kynntar alþjóðasamfélaginu.
Hundruði þúsunda Líbanona eru nú á verðgangi vegna árása Ísraelshers.