Klámstjarnan Anna Beatriz Pereira Alves, sem gengur undir nafninu Anna Poly á netinu, lést í skelfilegu slysi er hún féll af svölum eftir að hún bauð tveimur mönnum að taka þátt í kvikmynduðum trekanti á íbúðahóteli í Nova Igacu í Brasilíu.
Borgaralögreglan í Rio de Janeiro rannsakar nú dularfullt andlát hinnar 27 ára gömlu klámstjörnu eftir að hún fannst látin í garði hótels í borginni þann 23. janúar síðastliðinn. Hafði konan, sem bjó til kynlífsefni á internetinu, fór inn í íbúðina með þremur karlmönnum, þar á meðal vini hennar sem starfaði með henni.
Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum er lögreglan að rannsaka aðstæður á vettvangi. Er henni ætlað að kanna hvort um glæp eða slys hafi verið að ræða. Rætt hefur verið við starfsmenn hótelsins og lögreglan er enn að greina myndskeið frá hótelinu. Þá mun hún yfirheyra mennina þrjá sem voru með konunni er hún lést.