Það stundum sagt að Bandaríkin séu furðulegasta land í heimi en líklegt verður að telja að ökumenn sem urðu vitni að athæfi konu í Los Angeles séu hugsanlega sammála því. Á miðvikudaginn var gerði lögreglan í Los Angeles tilraun til að stöðva svartan jeppa sem hafði brotið umferðarlög. Ökumaður jeppans sinnti ekki fyrirmælum lögreglu og keyrði í burtu og upphófst eltingaleikur á hraðbraut í Los Angeles. Mikil umferð varð til þess að ökumaðurinn áttaði sig á því að hann kæmist ekki lengra og stöðvaði bílinn. Það sem fáir, ef einhverjir áttu von á, var að ökumaðurinn myndi klifra út um þakglugga jeppans, standa á þaki jeppans og klæða sig úr öllum fötunum. Slíkt varð hins vegar raunin. Ökumaðurinn var í kjölfarið handtekinn og hefur verið ákærður fyrir ýmiss brot.