Kona beið bana er kúahjörð óð yfir hana er hún fór út að ganga með hundum sínum.
Kúahjörð traðkaði konu nokkra til bana þar sem hún gekk með hundum sínum um sveit í Wales. Lögreglan segir að konan hafi látist í sveit nærri þorpinu Guilsfield, Welshpool í Wales þann 1. september síðastliðinn.
Konan var á göngu með hundum sínum á almenningsstíg sem lá í gegnum haga þar sem 40 kýr stóðu á beit. Af einhverjum ástæðum tröðkuðu kýrnar á henni þannig að hún beið bana.
Lögreglan í Dyfed-Powys segja að fjölskylda konunnar hafi verið látin vita af andlátinu og Heilbrigðis- og öryggisyfirvöld, einnig verið tilkynnt um það.
Fréttin er unnin upp úr frétt The Daily Mail.