Lögreglumenn í suður Yorkshire fengu heldur betur óvenjulegt útkall í síðustu viku því þeir þurftu þá að elta konu sem hafði stolið úr búð en hún lagði á flótta undan lögreglunni í rafknúnum hjólastól.
Samkvæmt lögreglu var mikil áhersla lögð á að stoppa konuna til að tryggja öryggi hennar og annarra vegfaranda. Myndband af atvikinu hefur farið eins og eldur í sinu á internetinu og hafa sumir netverjar gert athugasemdir við viðbrögð lögreglu sem þeir telja hafa verið öfgafull.
Hin 33 ára gamla kona var að lokum stöðvuð og handtekin. Ekki er talið líklegt að hún verði ákærð fyrir búðarhnuplið heldur verði málið leyst á annan máta.